01/09/2026
Afhverju eða kannski afhverju ekki ?
Ég hef fengið spurningar um það afhverju ég pósta ekki úr öllum myndatökunum sem ég tek að mér ? Og afhverju ég pósta ekki oftar? Afhverju auglýsiru ekki meira?
Og svarið sem ég segi oftast er það að ég er bara frekar lítið á samfélagsmiðlum og ég hreinlega gleymi því að setja inn myndir.
Fylgjandi spurning er þá mjög oft “en þarftu ekki að auglýsa og minna á þig og myndatökurnar?” - jú það hjálpar að vísu, en ég trúi líka á það að þeir sem koma til mín láti gott orð berast og benda vinum og vandamönnum á mig.
En ef ég svara þessu aðeins dýpra þá er svarið lengra. Því mér þykja myndatökur líka mega vera persónulegar og tengjast minningum fjölskyldnanna án þess að ég deili heilu myndatökunum á samfélagsmiðlunum mínum. Sama hve flott mér þykir útkoman. Flestar myndatökur sem ég tek að mér eru af fermingarbörnum og það er oft bara frekar viðkvæmur tími og aldur í lífi einstaklinga. Oft finnst þeim þetta kjánalegt, eða cringe eins og þau segja.
Það hafa einnig margir spurt mig hvort ég hreinlega taki að mér að mynda börn því ég pósta engum barnamyndatökum. Og já ég svo sannarlega geri það. En mér finnst eitthvað skrítið við það að ég deili myndum af börnum annarra þegar ég sjálf vel að deila mjög takmarkað og lítið af mínu barni á netinu. Þetta er grimmur heimur á netinu og ég ábyrgist það ekki hvert myndirnar mínar fara eða hverjir sjá þær á opnum miðli.
Eins með brúðkaup, Oh ég elska að mynda brúðkaup. En ég vel að deila ekki úr athöfn hjóna því mér þykir þetta svo einstaklega persónulegt augnablik. Inn á milli deili ég jú úr myndatökum til að minna á mig, það þarf víst líka.
Að því sögðu, ég er enn á fullu að mynda og mig dreymir um að geta starfað eingöngu við ljósmyndun (kannski þarf ég að breyta sýn minni á því að deila myndunum og vera meira í því), já ég mynda börn, og þú sem kemur í myndatöku til mín - þú hefur allt um það að segja hvort myndum af þér sé deilt eða ekki þar sem ég spyr kúnnana alltaf um leyfi fyrst.
-Að lokum, takk fyrir frábært fermingar, stúdenta og brúðkaups season síðastliðna mánuði, ég er spennt fyrir haustinu og að mynda ykkur öll. Látið endilega gott orð berast sem víðast 🤭🤍